Monday, December 17, 2007

öööm..hæ>.<

Ég biðst innilegra afsökunar á bloggleysi mínu. Þar seinasta sunnudag var ekkert búið að gerast þannig að ég bloggaði ekki og svo seinasta sunnudag var allt of mikið að gera þannig að ég hafði ekki tíma til að blogga. Er búin að lofa mörgum að blogga núna svo ég get ekki beilað enn og aftur.

Látum okkur sjá ef ég man allt sem hefur gerst seinustu 2 vikurnar..

AAAhh, ég manikke o.O

Hmm, þar seinasta sunnudag fór ég á amerískan fótboltaleik með Don ("host"-pabbi) og á undan leikinn fórum við út að borða og auðvitað var rosa mikið að gera þannig að við þurftum í fyrsta lagi að bíða lengi eftir að fá borð og svo í öðru lagi að bíða lengi eftir matnum. En óvenjulengi var nú biðin fyrir matinn o.O Loksins fengum við matinn eftir klukkutíma bið og leikurinn var brátt að byrja. Endaði með því að við fengum matinn í boði hússins OG gjafabréf fyrir aðra máltíð fyrir tvo síðar:)
Allt fór vel þar sem við náðum að setjast áður en kickoff hófst og við unnum leikinn:)

Þar seinustu viku, held ég, byrjaði svo track. Basically bara hlaup í tvo tíma strax eftir skóla:) KÍLL MÍ..

Keypti mér einnig skíði, eða fékk skíði í jólagjöf frá múttu og pabbalabba:D Lovjúgæs<3

Svo á laugardeginum í þar seinustu viku fór ég heim til Chanél og gisti þar yfir nóttina. Við átum pítsu og horfðum á myndir. 5 myndir til að vera nákvæm:P
Á sunnudeginum fór ég til West-Virginia til Ogabee park eða eitthvað svoleiðis til að sjá "the Light up night". S.s. bara ljós út um allt. Voða flott:)

Lærdómurinn er búinn að vera gríðarlegur þessar síðustu vikur og þó ég sé ekki í jólaprófum þá er samt mikið að gera.

Á föstudaginn kom Natalie ("host"-systir) heim. Gerðum ekki margt á föstudeginum
Ú.. Á fimmtudeginum fórum við, Janet að kaupa jólatré. Vúhú.

Í gær, laugardagurinn 17. des., fór ég á körfuboltaleik svo út að versla með Chanél og Franny svo fór ég með Natalie í skautahöllina en skautahöllin var lokuð en hún þekkir gutta sem vinnur þarna þannig að við fengum að fara inn og fengum að vera á bílnum sem gerir klakann sleipan, skiljiði hvað ég á við? o.O
Það var svít:P

Kom heim um 2 leytið og vaknaði klukkan hálf 8 til að fara í ræktina. Kom aftur heim og sofnaði klukkan hálf 11 og vaknaði svo aftur klukkan 4. vúpsídeisí. Svaf aðeins of lengi. Natalie kom upp og sagði: ertu lifandi?.. Hefði s.s. getað sofið mun lengur!

Næsta föstudag fer ég loooksins í jólafrí og byrja svo aftur strax 2. janúar. Svo fríið mitt verður því miður frekar stutt. Fer til Vermont í fríinu og fæ þá að skíða:D

Jæja, ætla að fara að sofa. Annað en flest ykkar þá hef ég skóla á morgunn>.<
KÍLL MÍ..

Lovs and hugs

1 comments:

jona said...

Yay blogg!
:D