Tuesday, August 28, 2007

Kennywood, Steelers og fyrsti skóladagurinn!

Loksins loksins hef ég fréttir að færa! Og þá frekar mikið:P

Á föstudaginn síðastliðinn fórum við, Chanél, í Kennywood sem er skemmtigarður með fullt af rússibönum og öðrum tækjum. Chanél kynntist ég í field hockey liðinu en hún er frá Norður-Afríku, líkt og Kolli. Hún hefur hreiminn og allt! Enda bara búin að búa í USA í 2 ár. Eníveis.. hún átti tvo miða og ákvað að bjóða mér!:D
Svo á laugardeginum var hálfgert picnic með AFS fólki.. Það var, lala:]
Á sunnudeginum var picnic með field hockey liðinu! Það þótti mér sko skemmtilegra en hitt með AFS. Öllum þykir Ísland voða athugavert land og foreldrarnir sérstaklega spurðu helling af spurningum.
Janet og Don komu að sækja mig þar sem picnic-ið var og fóru með mig beina leið downtown. Þangað fór ég til að sjá minn fyrsta ameríska fótboltaleik! Leikurinn byrjaði kl. 8 en það er hefð hérna að allir taki með sér mat og borði á bílastæðinu! Þið hafið séð þetta í bíómyndunum;).. Það er s.s. kallað talegating. Ameríski fótboltaleikurinn var helmingi skemmtilegri en hafnaboltaleikurinn. Fengum virkilega góð sæti og svo er þessi leikur bara miklu skemmtilegri en hafnabolti! Liðið sem ég kvatti heitir Steelers en þeir unnu Superbowl 2006 (minnir mig). Að sjálfsögðu unnum við leikinn, 27:13. EN þessi leikur skiptir engu máli þar sem það er enn þá bara preseason. Í tilefni kvöldsins keypti ég mér alvöru Steelers jersey. Númer 55! Joe Porter. Hann er reyndar hættur, en þetta var eina peysan sem var ekki rándýr! haha.. Á sama tíma og ég keypti steelers peysuna keypti ég einnig trilljón boli, buxur og annað sem ég hafði þörf fyrir fyrir skólann:D
Fyrsti skóladagurinn var s.s. í dag! Gekk býsna vel. Týndist bara einu sinni! Tel það vera þrælgott afrek:] Uppáhalds tímarnir mínir eru math, genetics and microbiology og international relations. Kerfið hérna virkar eins og kerfið í MH, s.s. ekki bekkjarkerfi. Seinasti tíminn minn er TV production. Ég er ekki alveg að fíla þann tíma þar sem allir eru annaðhvort freshman (14 ára) eða sophmores (15 ára). Þetta eru líka krakkar eins og bíómyndunum, sem leggja í einelti og vesen. Nenni ekki að hanga með svona pakk. Svo er kennarinn ekki að gera tímann betri! Hann veit ekkert í sinn haus og hann er svo LAAAAMMMMEEEE. vá! hann ákvað að eyða öllu sumrinu sínu í að gera myndbad um sjálfan sig sem hann svo sýndi í fyrsta tímann. Ég vorkenndi honum smá því allir voru að hlæja að honum og myndbandinu:/ Ég fæ að breyta þennan tíma í eitthvað annað samt þannig að ég þarf ekki að vera þarna mikið meira en eina viku:]

Þetta hlýtur að næga í bili:]
Ég setti HELLING af fleiri myndum á sama link og er hér við hægri hlið. Þannig að þið ýtið bara aftur á myndir 1 til að sjá fleiri myndir:P

Elska ykkur öll og sakna ykkar líka!!
Túdels poopholes:]
-Guðný íslenska stúlkukindin.

Monday, August 20, 2007

..

Ekki mikið hefur gengið á síðan seinustu bloggfærslu en mér datt samt í hug að skella inn nokkrum orðum til að láta vita af mér og setja nokkar myndir af hafnaboltaleiknum.
Í gær fór ég út að hlaupa því það var engin æfing. Fór ekki langt! Hljóp bara smá hring. En, boy ó boy, ég sá svo krúttleg og flott hús. Á meðan yfir hlaupinu og húsaskoðuninni stóð sá ég einnig fjögur hreindýr!!! Í garðinum hjá einu húsinu! Damn, ég vildi'ég hefði haft myndavélina með mér. Hreindýr, hérar og önnur dýr eru frekar vinsæl í görðunum þannig að ég mun væntanlega ná að smella nokkrum myndum einhvern tíma.
Í dag var leikur á móti annan skóla í field hockey en ég mátti ekki spila vegna þess að ég þarf að fá samþykki frá einhverjum gutta því fólk gæti haldið að Mt. Lebanon hafi flutt mig inn frá Íslandi því ég væri svo góð. Ööö.. neibb! Ég sukka.
Á morgun er svo æfing frá 9.30 til 13.00! Shoot me.. Eftir æfingu fáum við búninginn okkar:P Við keppum í pilsum. haha. Það verður athugavert. Tek myndir af búningnum og set á netið við fyrsta tækifæri. Ekki örvæntast:]
Held að þetta verði að næga þar sem ég hef ekkert meira til að segja:/
Myndir eru að finna hér við hægri hlið. Enjoy.. Þær eru btw, EKKI margar.

LuvU&MissU
Túdels
Guðný Debora Íslendingur!

Tuesday, August 14, 2007

Fyrsta bloggið í USA

Olrætí then. "Brief statement" yfir það sem ég hef gert undanfarna 4 daga:
Ferðalagið til New York var minnsta mál. Nokkrir bömmerar, eins og að kveðja múttu og pabba, flugið tók klukkutíma lengur en ég hélt, en það er allt og sumt. Ferðalagið til Pittsburgh var hins vegar ævintýri fyrir sig sjálft. Á meðan yfir biðinni stóð þar sem fluginu varð seinkað, vegna þess að flugið sem ég átti að taka varð fyrir ELDINGU!! AHA! ég er enn í sjokki, byrjuðu þessi krúttlegu gömlu hjón að tala við mig. Þau lánuðu mér síma til að hringja í konu sem ég átti að láta vita ef fluginu varð seinkað því ég kunni eeekkert á tíkallasímann og ég gat ekki notað minn síma. Þau voru voða næs. Eftir seinkunina varð ég smá pirruð og soldið smeyk, I guess. Eníveis, einhver prumpaði og ég vissi ekki hver það var. Hvort það hefði verið gamla konan sem sat vinstra megin við mig með gasleka vegna þess hún át svo mikið af soðnum eggjum, bóbó-inn (sveittur, feitur og loðinn maður) sem stóð fyrir framan mig eða litlu börnin sem sátu fyrir aftan mig. En til að sætu strákarnir mundu ekki halda að þetta hafi verið ég, þá gerði ég þennan.. þennan.. grettusvip! common! það er bara verra!
Út af seinkuninni þá mættum við, Laurent (frönskumælandi sviss-gaur) frekar seint á svæðið þar sem komunámskeiðið var haldið og fórum því beint að sofa.
Daginn eftir var smá boring kynning um hvernig maður á að höndla þetta ár og blabla.. svo komu nágrannarnir að sækja mig og tóku mig heim til sín. Ég veit ekki hvort ég hafi sagt það í fyrrum bloggum en Welcome fjölskyldan mín gat ekki haft mig um helgina þannig að ég var hjá nágrönnum og þau eiga 2 börn á mínum aldri þannig ég skemmti mér vel hjá þeim:] Svo í gær kom Janet að sækja mig til þeirra. Í dag fór ég á æfingu með the field hocki team. Það er alveg eins og hokkí nema ekki á klaka, s.s. bandí. Það verður bara gaman að því:] það eru 2 æfingar á dag þangað til skólinn byrjar sem er eftir 2 vikur. 27. ágúst. Svo eru æfingar með skólanum offkors. Ég sá á æfingu í dag American football players, klappstýrur og the marching band. Þetta er svo amerískt!! hahah
Á fimmtudaginn verður piknik með AFS fólki og svo á föstudaginn fer ég á hafnaboltaleik:D Það verða tónleikar eftir það og svo flugeldasýning. Hljómsveitin sem kemurtil með að spila heitir eitthvað sem ég man ekki núna í augnablikinu, en þeir spila lag í shrek.. Hey now, you're a rockstar.. Þið fattið.
Ég er allavega farin að sofa! Ég er svo þreytt að stafsetningarvillur eru örugglega deadly obvious! Myndir verð ég að setja inn seinna. Hef hvort eð er engar yet:/ þarf að hlaða myndavélina mína og fá mér myndasíðu. Mælir einhver með einhverri myndasíðu?? let me know..

LovU guys & MissU2
Túdels píps
Deb

Wednesday, August 8, 2007

Pittsburgh, PA... Á morgunn!!

Ég ætla bara rétt að skella inn nokkrum orðum rétt áður en ég hverf á brott. Er s.s. að fara á morgunn, þarf að vera mætt út á flugvöll klukkan 8 um morguninn.

Host-fjölskyldan mín inniheldur: hjón, Janet&Donald, komin á fimmtugsaldurinn, eina dóttur, Natalie, sem er 18 ára (89') og einn hund. Þau búa í Pittsburgh, Pennsylvania í hverfi sem er kallað Mount Lebanon. Skólinn minn heitir því Mt. Lebanon High School. Þetta er upper-class, 2.000-manna skóli og talinn vera með einn af þeim bestu "menntaskólum" Bandaríkjanna. Ég er Mjöööög sátt.
Dótturin er flutt að heiman og farin í college. Ég hitti hana ekki fyrr en í október þegar við heimsækjum hana. Janet vinnur mikið fyrir AFS og er jarðfræðingur. Don er general manager (framkvæmdastjóri) dótturfyrirtækis Bayer-industries sem er eitthvað Riisastórt fyrirtæki. Pittsburgh er kölluð "The Steel City" vegna þess að borgin er önnur stærsta iðnborg Bandaríkjanna.

Það sem ég á enn eftir að koma að, það er að þessi fjölskylda verður ekki mín fjölskylda yfir allt árið. Þau eru meira svona "Welcome family" eða svona bráðabirgða fjölskylda. Ég var fyrir svolitlum vandræðum þegar ég komst að því, því mér líst svo rosalega vel á familíuna. Ástæðan fyrir því að þau vilja ekki host-a mig allt árið er vegna þess að þau, hjónin, halda að upplifunin verði ekki jafnskemmtileg án systkina á heimilinu. Því ætlar Janet, sem vinnur mikið fyrir AFS, að finna fyrir mig fjölskyldu sem eru með börn á mínum aldri en samt þannig að sú fjölskylda sé staðsett í Mt. Lebanon hverfinu þannig að ég þurfi ekki að skipta um skóla. Það finnst mér æði. Æðislegt af henni. Hún hefur sýnt það að hún hafi mikinn áhuga á þetta hjálparstarf og leggur greinilega mikinn metnað í að gera mig hamingjusama:] tíhí..

Nú er ég búin að kveðja flesta vini (MR KRAKKAR OG AÐRIR SEM ÉG NÁÐI EKKI AÐ KVEÐJA! HAFIÐI ÞAÐ GOTT OG GANGI YKKUR VEL Í SKÓLANUM! VIÐ SJÁUMST SVO HRESS Á NÝJU ÁRI:D). Ég hef fengið mjög mikið af gjöfum, eitthvað sem ég bjóst EKKI við:P (þið eruð svo miklar dúllur!! hah:D). Ég held ég átti mig eiginlega ekkert á því að ég sé að fara á morgunn. Ég kveð alla í algjörum rólegheitum, þvílíku tjilli.. T-T-T-T-Tjilli! (leim>.<). Hef ekekrt stressað mig neitt. Reyndar áðan fattaði ég að ég átti eftir að fá seinustu sprautuna! Ég og mútta brunuðum niðrá heilsugæslu en þá kom í ljós að hjúkkurnar sem sprauta væru bara til fjögur! Ég og mamma vældum og báðum þau um að spyrja einhvern lausan lækni að gera þetta bara. Nop props. Búin að því þá.. frekar dauf í hendinni, íhk. EEEN annars er ég stresslaus:] Ekkert búin að væla. Svo er þetta nú bara ár! Þetta tekur engan tíma að líða! Áður en ég veit af þá er ég komin heim, Jóna og Alísa útskrifuð úr Menntaskóla!! HALLÓ!, Mamma&pabbi búin að byggja bústaðinn og Erla bigsys og Jonni að fara að gifta sig! JIIII...

Nokkur orð urðu að frekar stóru bloggi! Þarf hins vegar að kveðja núna. Er nýbúin að kveðja Elvu bigsys, afa og aðra ættingja og er nú komin með smá kökk í hálsinn!
Þakka enn og aftur fyrir gjafirnar krakkar.
Btw.. Ég mun líklega ekki geta bloggað, sett inn myndir eða svarað e-mailum og örðu fyrrr en eftir einhvern tíma. En, have patience my friends, ég mun blogga, setja fjölmargar myndir og svara öllum e-mailum og fleira!

Gotta goo:]
Túdels píps!!
-Gvendur