Monday, July 23, 2007

bla.. blabla.. BLA

Wellwellwell, kominn tími á bloggeríblogg:]

Á föstudaginn fór ég á "fund" með bandaríska sendiráðið. Það var... sérstakt en aðallega strangt! Ég var búin að ímynda mér að ég þyrfti að taka í lófann á tveimur mönnum, annar sem ritaði allar spurningar og svör niður og hinn sem spurði spurninganna. Ég hafði rangt fyrir mér. Mér leið eins og í fanglesi. Það voru rimlar fyrir gluggunum og ekkert andrúmsloft. Þurfti að tala við manninn, einn mann, í gegnum gler!! ég meina.. COMMON! við búum á Íslandi. Hverjum er ekki sama um bandaríska sendiráðið á Íslandi?? jiminn
Allavega, ég er komin með visaáritun sem leyfir mér að vera í Bandaríkjunum í eitt ár:] vúhú

Eftir 15 mín. eru aðeins 16 dagar þangað til brottför eiga sér stað. Ég er ekkert að panica núna því mér finnst ég vera búin að gera allt nema að pakka. Áætlunin er samt að pakka sem minnstu og kaupa því bara meira>.< mí lækí mí planí..
Enga fjölskyldu hef ég fengið og því farin að efast um hvort einhver vilji mig. Maðurinn sem tók viðtal við mig í US sendiráðinu hafði húmor og sagði að enginn vildi mig. Ööö.. vonandi.. var.. þetta húmor?

Síðasta föstudagskvöld hélt ég kveðjupartý fyrir vini. Það var fjör:] rólegt en samt læti, leim en samt úbergaman. Ég var satisfied:] Táraðist! þegar Anna og Iðunn gáfu mér hálsmenni. Litlu dúllur. You didn´t have to(roðnukall), haha. Takk æðislega fyrir kvöldið:D

Farin að lúlla held ég bara, þótt ég sé í fríi á morgun.
túdels poopholes:]

Wednesday, July 11, 2007

Leiðindarblogg

Þá er það ljóst að mamma sjálf les ekki einu sinni bloggin mín en vinga gerir það þó:] DANKE
Eníveis.. datt í hug að blogga aðeins þar sem ég hef ekkert annað að gera og er ekki þreytt. Leiðist bara.
Engar fregnir eru enn komnar sambandi við fjölskyldu eða svæði þarna úti en ég fékk hins vegar sent heim þvííílíkan bunka af blöðum sem tengist visa-árituninni. Crap, ég sem hélt að ég væri búin með allt svona blaða-blabla. Þarf að fara á fund með bandaríska sendiráðinu og þvílíkt, þannig að ég fékk svona nett panic-attack þegar ég sá þetta. Svo mikið að gera á svo litlum tíma! Eller hvad..?
Today var ég í fríi og naut ég þeirra réttinda að endurnýja orkuna mína sem ég hafði tapað eftir seinustu viku. Svo skrúbbaði ég og bónaði herbergið mitt. Það hefur ALDREI verið jafnhreint og það er núna, mig líður eins og á hóteli>.<
Svo er ég orðin hörku-góð á bretti. Kann að renna mér og allt:]

Læt þetta gott heita.
Later
Túdels

Sunday, July 1, 2007

Eitt sinn skáti, ávalt skáti

Jæja dyggi lesandi, s.s. mamma, tími til kominn til að hefja nýtt blogg.
Aðallega ætla ég bara aðeins að segja frá helginni minni. Plönin voru að liggja í sólbaði með flugurnar í andlitinu og hlusta á pabba raula og glamra á gítar á meðan mamma reyndi að fá okkur öll til að fara í orðaleikinn "skemmtilega":D.
Slight change of plans. Ekkert sólbað átti sér stað vegna þess að við þurftum endilega að velja eina tjaldsvæðið á landinu sem var með eitt stórt, feitt og grátt ský yfir sér sem olli því að rigning streymdi niður í stað sólargeislanna. Hins vegar fékk pabbi að raula og glamra á gítar en einu lögin sem spiluð voru, voru gömul skátalög eða drykkjusöngvar eins og det var brændevin i flasken da vi kom. Flugurnar voru einnig á sinn stað þótt það rigndi.
Eitt sem ég komst að í þessari útilegu var að þessi setning: "eitt sinn skáti, ávalt skáti", er virkilega sönn! Konurnar sem eru með mömmu í saumó tóku upp stóru og ósýnilegu melónuna, skáru hana og spíttu út úr sér steinunum. Þetta var víst eitthvað skáta-stuff. Voða skemmtilegt (hahh).
Erla bigsys og co. lögðu snemma af stað í bæinn og ég fékk að fljóta með. Það var æðislegt að vera komin í sólina aftur þótt að í útilegunni hafi bara verið fínt:] Reyndar stuttu eftir að við vorum komin heim þá hertók rigningin sólina og ríddi rækjum... réði ríkjum!
Áðan fór ég á Shrek 3 með erlu-bigsys, jonna-bigsys'soon-to-be-husband og markús-lilbro (orðin hel.. góð í slanginu). Sú mynd er awesomeism. You know it! Mega fyndin:D Hló dátt! Mæli eindregið með henni:]
Ætlaði að skrifa alveg þvílíkt blogg en svo bara man ég ekkert hvað ég ætlaði að skrifa:/ þannig ég læt þetta gott heita í bili.

Túdels poopholes:]
-Guðný