Sunday, October 28, 2007

Svít Seventeen..?

Enn og aftur var biðin frekar löng. Hef ákveðið að blogga á sunnudögum héðan í frá. Þannig að þá vitið þið að það bíður nýtt og ferskt blogg eftir ykkur á mánudeginum. Hvernig sándar það??

Seinasta sunnudag, 21. október, átti ég afmæli. Afmælisdagurinn var ekkert spes; matur, kaka. Laugardagurinn var hins vegar æði! Eftir seinasta field hockey leikinn okkar ákváðum við stelpurnar að hittast hjá Caroline og tjilla hjá henni, eða það var það sem ég hélt.. Þegar ég kom á staðinn stukku allar stelpurnar út og öskruðu SURPRISE!! Mig dauðbrá og ég hafði ekki hugmynd um að þær ætluðu að halda surprise partý fyrir mig!:D Það var borðað og spjallað, spilað og leikið. Eftir það fór ég beinustu leið heim til Chanél og þar var hún með smá campout fyrir mig og Franny. Það var geðveikt gaman:D Skemmtum okkur konunglega! Smakkaði osom Suður-Afríkanskan mat og hann var æði. Næsta morgun komu Janet og Don að sækja mig. Og þið vitið rest; matur, kaka.
Ú! ég fékk afmælisgjafir frá fjölskyldu minni heima:D Varð úber ánægð:D Fékk frá Erlu og co. náttföt og bol (er btw búin að vera í náttfötunum síðan Erla! Takk:D), fékk frá elvu geheheðveikt svalt veski! svona bleikt pallíettu veski, bjútí-bláa spöng og geðveikan klút (Takk Elva!:D) og svo fékk ég frá múttu&pabbalabba&markús geeeðveika peysu frá rokk og rósir (fólk er búið að vera hrósa peysuna þvílíkt:D ég er mega sátt:D haha), cintamani peysu sem kemur sig vel þar sem að hitastigið á morgunn á að vera við frostmark og ég tók ekki mikið af hlýjum fötum með mig út. Takk æðislega elskurnar:D Lovjú'all<3

Á miðvikudaginn er Halloween þannig að þessa helgi var mikið þannig stöff um að vera. Það var Halloween skrúðganga í gær sem AFS skiptinemarnir fengu að taka þátt í. Eftir gönguna héldu allir heim til mín að skera út pumpkin, borða og við fórum í nokkra leiki.
Chanél kom og við tvær fórum út. Löbbuðum niðrí banka og þar kom Franny að sækja okkur. Hún fór með okkur í eitt hús ömmu hennar og afa þar sem margt fólk var að mála og við ætluðum bara að koma og hjálpa til. Við þrjár vorum búnar að ákveða að fara í bíó á miðnætursýningu en áttum eftir að fá leyfi. Fórum þá heim til Chanél þar sem það var á leiðinni til hús ömmu Franny's og afa. Chanél fékk leyfi þó furða sé og ég fékk einnig leyfi frá Janet.
Komum á staðinn og fólk var hætt að mála. Fólkið sem var þarna vantaði víst eitthvað úr bílnum þannig að Franny lenti í klípu þar sem við komum örlítið of seint.
Franny varð "grounded"!!! Common..!! Hún var grounded vegna þess að við komum fimm mínútum of seint og það var allt út af því að við stoppuðum hjá mömmu Chanél í fimm mínútur til að spyrja hvort hún mætti fara í bíó og það var í leiðinni þangað! Henni var bannað að fara í bíó, bannað að fara að hitta kæróinn sinn í dag og bannað að hitta hann á miðvikudaginn. Hún hitti þann gutta seinast á homecoming. hahah.. Þetta fannst mér vera örlítið og langt gengið fyrir að koma fimm mínútur of seint. Ég var þarna á staðnum þegar hún varð grounded þannig að ég veit það með vissu að það var ekkert meira en það.
Amerískar fjölskyldur eru svo skrýtnar. Þau bera enga virðingu fyrir það sem barnið þeirra segir, ekki fyrr en barnið fer í háskóla. Þetta er fáranlegt. Franny er 18 að verða 19 ára og ég stóð þarna heyra mömmu hennar segja við hana: "You're a CHILD, Franny".. Ég get ekki lýst þessu betur en þetta.
Svona gengur á hjá Chanél líka. Hún fær enga virðingu frá föreldrum sínum. Stórfurðulegt alveg, haha:P

Eníveis.. Janet var að segja mér að í Janúar væri stelpa að koma sem skiptinemi hingað frá Íslandi!! Get ekki beðið:D:D:D Fæ að tala íslensku!!!:D Eins og þið hafið ábyggilega tekið eftir, þá er íslenskan alltaf að hörfa smátt og smátt og það er algjörlega að fara með mig! Vil ekki gleyma þetta fagra tungumál. Já, ég segi það enn og aftur, faaagra tungumál!:P

Ég er annars farin að læra. Sakn&elsk..
Guðný Debora

P.s. komnar myndir!

Monday, October 15, 2007

Wossup now!

Um daginn gleymdi ég að nefna stöff eins og, skrúðgangan fyrir the homecoming game, dancing in the boys locker room. Svo að sjálfsögðu ætla eg að skella inn nokkrum orðum um homecoming sem átti sér stað í gær!

Skrúðgangan fyrir the homecoming game er eiginlega bara til að tilkynna hver er the homecoming king og homecoming queen. Skiptinemarnir gengu fremst í skrúðgöngunni. Það var gaman.. soldið vandró. Gaurinn sem tilkynnti nöfnin sagði mitt nafn, auðvitað, frekar mjög mikið vitlaust. Veit að myndi segja það rangt en gosh.. Ég heiti ekki Gundí!! Ég er ekki frá Indlandi, hahah.

Dancing in the locker room gerðist þegar við áttum að spila á móti, eitthvað lið sem ég gleymdi hvað heitir, og leikurinn varð aflýstur út af þrumur og eldingar. Okkur var skipað að fara inn og við stelpurnar ákváðum að nýta tækifærið og tjékka át the boys locker room. Það var osom!! Enginn af okkur hafði farið þangað inn áður og þetta var nákvæmlega eins og í bíómyndunum! Við settum á play á græjunum og upp kom einhver cheesy músík sem enginn vissi hvað var og við sprungum úr hlátri! Ekki datt okkur í hug að aðal töffararnir hlustuðu á einhverja konu syngja væmna tónlist! En við skemmtum okkur konunglega og dönsuðum afar mikið! Ég tók ekki margar myndir og ég náði ekki myndum þegar við vorum aaallar að dansa því að já.. þá var ég líka að dansa:P

Homecoming var í gær. Það var últra-mega gaman. Hitti hópinn minn um 5 leytið, tókum nokkrar myndir og fórum svo út að borða á stað sem heitir luma. Það var rosa fínt. Maturinn var osom og kvöldið var bara osom og cheesy:D:D Eftir matinn áttum við u.þ.b. klukkutíma þangað til að deadline fyrir ballið var þannig að við lögðum bílnum einhver staðar og horfðum á The Office í bílnum. Það var geðveikt kósý! Þegar við komum á ballið var starað a mig eins og ég veit ekki hvað út af gerviaugnhárunum!! hahahhaha.. það var einnig osom! Ballið var fínt, dansað mikið. Eftir ballið horfðum við á meira Office í bílnum og fórum svo heim til Franny's og pöntuðum pítsu og horfðum á Disturbia. Bölvaða mynd. Varð hrædd. Strákarnir fóru og við stelpurnar gistum heima hjá Francis (Franny). Þetta var allt æði!

Á morgun er skóli en það verður enginn venjulegur skóladagur. Neii.. Sporks er nefnilega byrjað!! Það er leikur sem aðeins seniors mega spila. Allir lögðu 5 dollara í pott, potturinn er btw u.þ.b. 1000 dollarar! ekki slæmt að vinna það!. Leikurinn snýst um að sleppa aldrei takinu í svona plastgaffal sem fæst á Kentucky. S.s. allir þurfa að fá sér svona gaffal og mega aldrei, nema að það sé íþrótt, sleppa gafflinum. Svo fá allir einhvern til að "sporka". Ef gaurinn sem þú átt að reyna að sporka sleppir gafflinum þá geturu farið og sporkað hann, þá er hann úr leik. Þessi leikur er alveg þangað til í lok SKÓLAÁRSINS. Í fyrra gengu menn frekar langt og brutust inní hús annarra manna og földu sig undir rúmi manneskjunnar sem þau áttu að sporka og beið þangað til að manneskjan sofnaði og þá ekki með gaffalinn í hendina og sporkaði manneskjuna! það eru fleiri reglur núna heldur en voru í fyrra og megum við s.s. ekki brjótast inní hús annarra manna. hahaha

THE END
verð að fara að sooofa! set inn myndir seinna. Ekki á morgunn því ég mun ekki hafa tíma á þá. Kannski á þriðjudaginn.
Lovjú&missjú!!
Kv. Guðný Debora Jóhannsdóttir
Túdels

P.s., íslenskan mín sökkar.

Friday, October 12, 2007

Loksins komið haust?

Ég biðst innilegrar fyrirgefningar fyrir bloggleysi mínu! Vonandi eftir þetta blogg áttiði ykkur á því afhverju ég hef svona lítið bloggað!

Ekki seinustu helgi, heldur helgina fyrir það, fór ég með Janet og Chanél til Canada til að sjá Niagara Falls. Ég var alls ekki búin að búast við að fara til Niagara Falls yrði svona skemmtilegt. Canada megin er með mjög mikið af alls konar dóterí. Minnti mig soldið á Las Vegas eða einhvers konar tívólí rsome.
Að fara til Canada var ekki lítið mál! Ég þurfti að senda vísaáritunina mína til "yfirvaldanna" til að fá það stimplað og svo þurfti Chanél, sem er frá Suður-Afríku, að athuga hvort það væri ekki pottþétt hægt að fara í gegn með aðeins græna kortið. Allt gekk í lundu við landamærin enda var það eins gott.
Við þurftum að leggja af stað um 8 leytið á laugardagsmorgninum þar sem það tekur 4 tíma að keyra þangað. Skoðuðum allt á einum degi þar sem við þurftum að leggja af stað eldsnemma á sunnudagsmorgninum því að the senior boatride var þann sama dag.
The senior boatride, eins og sjá má á nafninu, er ball aðeins fyrir seniors og haldið á báti! Það var geðveikt gaman!! Frekar snemma reyndar, frá 6-9:30. Hahaha:D
Ég dansaði af mér bossann á meðan aðrar píur nudduðu sinn upp við strákana. Þetta er ólýsanleg sjón!! Ég drapst úr hlátri! ALLIR dansa NÁKVÆMLEGA eins. Þegar strákur og stelpa dansa saman þá snýr stelpan baki í strákinn og byrjar að dilla bossann upp við strákinn. Svo standa þau þarna bara vandræalega og gera ekkert annað. ALLIR dansa svoleiðis. Ég myndi skilja ef nokkrir tæku að sér að gera rassa-nudd-dansinn en ALLIR.. hahah! Ég skal taka með mér myndavélina á homecoming og sýna ykkur hvað ég á við því ég get ekki útskýrt það nógu vel.

Á föstudaginn seinasta var einhvers konar spirit essembling en þá safnast allur skólinn saman útá völl og horfa á einhverja nemendur keppa og blablabla.. ekkert gaman að því. Reyndar var skóladagurinn styttri út af þetta atvik þannig að jeiii:D

Ekkert skemmtilegt hefur gerst í þessari viku en ég er bara búin að vera að kafna í heimavinnu. Því miður. Þar sem ég fæ þetta ekkert metið þá er ég liggur við að detta niður dauð því ég verð samt að gera þetta allt saman! sökkar feitan babar..

Í gær sagði Amy, þjálfarinn okkar, við okkur að við þyrftum ekki að taka með okkur "prikin" sem við notum en það þýðir vanalega HLAAAAUUUP!! Þannig að allir voru frekar stressaðir fyrir æfingu í dag. En allavega.. haldiði svo ekki bara að Amy, litli hrottarinn, laug að okkur stelpurnar og hélt í staðinn smá surprise-teiti!:D Það var ÆÐI! Get ekki sagt að ég hafi verið í stuði til að hlaupa "the big loop"!

Á morgunn er svo the senior recognition day fyrir field hockey. Það virkar þannig að fyrir leikinn annað kvöld er okkur tilnefnt og eitthvað svona sætt. Við fáum blóm og líklega viðurkenningarskjal rsome. Það verður úber-fönn:D Ætla að reyna að smella nokkrum leim myndum til að sýna ykkur nokkurn veginn hvað ég er að röfla um.

Á laugardaginn er svo HOMECOMINNNNGGG! Þemað er homecoming of the future, future, future... Ég, Guðný Debora, ætla að sjálfsögðu að skella geðveiku gerviaugnhárunum á mig! Það verður osom! Fólk á eftir að stara á mig og hugsa: "Ohh, that IF, she's so weirdly coool man!!" Ég var spurð 3 frá 3 strákum og ég sagði 3 sinnum nei:/ Sagði það á vingjarnlegasta hátt ever! Málið er að Chanél got ditched þannig að við ákváðum bara að fara dateless þar sem að hinar 2 stelpurnar í hópnum okkar eru þegar með deit. Vildum frekar fara 2 dateless heldur en 1 dateless og sú dateless-a stelpa þurfti að líða eins og þriðja hjólið.. Er ég að meika einhvern sens hérna?
Allavega, hópurinn minn inniheldur: Guðný Debora Jóhannsdóttir, Chanél Smit, Francis eitthvað og Rob (deitið hennar) og svo einhverja stelpu sem ég þekki ekki og deitið hennar. Þessir tveir strákar sem eru að fara með okkur eru báðir í College þannig að það verður weird fyrir þá að fara aftur á high school ball.
Hópurinn minn ætlar út að borða á stað sem heitir Lunas eða eitthvað sem ég man ekki en það er víst einhver voða fancy staður:P Tek myndir og læt ykkur vita meira um þetta allt vonandi um helgina!

Þarf að fara að lúlla.
Lovjúall&missjúall!
Túdels
-Guðný Debora Jóhannsdóttir

Ú, p.s. myndir:D

Ú, p.s. 2 gleymdi að nefna margt eins og dancing in the boys locker room, skrúðgangan og the homecoming game, the German fieldtrip to Cleveland, teitið sem ég hélt (eða var ég búin að nefna það?), stuff sem gerðist við Niagara Falls og eitthvað meira. Segi frá þessu öllu í næsta bloggi, þarf að fara að lúlla. Góða nótt!

Ú, p.s. 3 ef einhver vill senda mér tölvupóst og veit ekki tölvufangið mitt (frekar ólíklegt að einhver sem ég þekki viti ekki tölvufangið mitt, en aldrei að vita) þá er þa gudny21@hotmail.com . Getið líka sent mér email á gudnyd@mr.is en þá mun ég ekki lesa né svara það:] Lovjall!