Friday, October 12, 2007

Loksins komið haust?

Ég biðst innilegrar fyrirgefningar fyrir bloggleysi mínu! Vonandi eftir þetta blogg áttiði ykkur á því afhverju ég hef svona lítið bloggað!

Ekki seinustu helgi, heldur helgina fyrir það, fór ég með Janet og Chanél til Canada til að sjá Niagara Falls. Ég var alls ekki búin að búast við að fara til Niagara Falls yrði svona skemmtilegt. Canada megin er með mjög mikið af alls konar dóterí. Minnti mig soldið á Las Vegas eða einhvers konar tívólí rsome.
Að fara til Canada var ekki lítið mál! Ég þurfti að senda vísaáritunina mína til "yfirvaldanna" til að fá það stimplað og svo þurfti Chanél, sem er frá Suður-Afríku, að athuga hvort það væri ekki pottþétt hægt að fara í gegn með aðeins græna kortið. Allt gekk í lundu við landamærin enda var það eins gott.
Við þurftum að leggja af stað um 8 leytið á laugardagsmorgninum þar sem það tekur 4 tíma að keyra þangað. Skoðuðum allt á einum degi þar sem við þurftum að leggja af stað eldsnemma á sunnudagsmorgninum því að the senior boatride var þann sama dag.
The senior boatride, eins og sjá má á nafninu, er ball aðeins fyrir seniors og haldið á báti! Það var geðveikt gaman!! Frekar snemma reyndar, frá 6-9:30. Hahaha:D
Ég dansaði af mér bossann á meðan aðrar píur nudduðu sinn upp við strákana. Þetta er ólýsanleg sjón!! Ég drapst úr hlátri! ALLIR dansa NÁKVÆMLEGA eins. Þegar strákur og stelpa dansa saman þá snýr stelpan baki í strákinn og byrjar að dilla bossann upp við strákinn. Svo standa þau þarna bara vandræalega og gera ekkert annað. ALLIR dansa svoleiðis. Ég myndi skilja ef nokkrir tæku að sér að gera rassa-nudd-dansinn en ALLIR.. hahah! Ég skal taka með mér myndavélina á homecoming og sýna ykkur hvað ég á við því ég get ekki útskýrt það nógu vel.

Á föstudaginn seinasta var einhvers konar spirit essembling en þá safnast allur skólinn saman útá völl og horfa á einhverja nemendur keppa og blablabla.. ekkert gaman að því. Reyndar var skóladagurinn styttri út af þetta atvik þannig að jeiii:D

Ekkert skemmtilegt hefur gerst í þessari viku en ég er bara búin að vera að kafna í heimavinnu. Því miður. Þar sem ég fæ þetta ekkert metið þá er ég liggur við að detta niður dauð því ég verð samt að gera þetta allt saman! sökkar feitan babar..

Í gær sagði Amy, þjálfarinn okkar, við okkur að við þyrftum ekki að taka með okkur "prikin" sem við notum en það þýðir vanalega HLAAAAUUUP!! Þannig að allir voru frekar stressaðir fyrir æfingu í dag. En allavega.. haldiði svo ekki bara að Amy, litli hrottarinn, laug að okkur stelpurnar og hélt í staðinn smá surprise-teiti!:D Það var ÆÐI! Get ekki sagt að ég hafi verið í stuði til að hlaupa "the big loop"!

Á morgunn er svo the senior recognition day fyrir field hockey. Það virkar þannig að fyrir leikinn annað kvöld er okkur tilnefnt og eitthvað svona sætt. Við fáum blóm og líklega viðurkenningarskjal rsome. Það verður úber-fönn:D Ætla að reyna að smella nokkrum leim myndum til að sýna ykkur nokkurn veginn hvað ég er að röfla um.

Á laugardaginn er svo HOMECOMINNNNGGG! Þemað er homecoming of the future, future, future... Ég, Guðný Debora, ætla að sjálfsögðu að skella geðveiku gerviaugnhárunum á mig! Það verður osom! Fólk á eftir að stara á mig og hugsa: "Ohh, that IF, she's so weirdly coool man!!" Ég var spurð 3 frá 3 strákum og ég sagði 3 sinnum nei:/ Sagði það á vingjarnlegasta hátt ever! Málið er að Chanél got ditched þannig að við ákváðum bara að fara dateless þar sem að hinar 2 stelpurnar í hópnum okkar eru þegar með deit. Vildum frekar fara 2 dateless heldur en 1 dateless og sú dateless-a stelpa þurfti að líða eins og þriðja hjólið.. Er ég að meika einhvern sens hérna?
Allavega, hópurinn minn inniheldur: Guðný Debora Jóhannsdóttir, Chanél Smit, Francis eitthvað og Rob (deitið hennar) og svo einhverja stelpu sem ég þekki ekki og deitið hennar. Þessir tveir strákar sem eru að fara með okkur eru báðir í College þannig að það verður weird fyrir þá að fara aftur á high school ball.
Hópurinn minn ætlar út að borða á stað sem heitir Lunas eða eitthvað sem ég man ekki en það er víst einhver voða fancy staður:P Tek myndir og læt ykkur vita meira um þetta allt vonandi um helgina!

Þarf að fara að lúlla.
Lovjúall&missjúall!
Túdels
-Guðný Debora Jóhannsdóttir

Ú, p.s. myndir:D

Ú, p.s. 2 gleymdi að nefna margt eins og dancing in the boys locker room, skrúðgangan og the homecoming game, the German fieldtrip to Cleveland, teitið sem ég hélt (eða var ég búin að nefna það?), stuff sem gerðist við Niagara Falls og eitthvað meira. Segi frá þessu öllu í næsta bloggi, þarf að fara að lúlla. Góða nótt!

Ú, p.s. 3 ef einhver vill senda mér tölvupóst og veit ekki tölvufangið mitt (frekar ólíklegt að einhver sem ég þekki viti ekki tölvufangið mitt, en aldrei að vita) þá er þa gudny21@hotmail.com . Getið líka sent mér email á gudnyd@mr.is en þá mun ég ekki lesa né svara það:] Lovjall!

2 comments:

Anonymous said...

Hæ elsku Guðný mín...
hahahaha... það er það eina sem ég get sagt, þetta virðist allt saman vera mjö gaman hjá þér, og kannski smá furðulegt :) en hlakka til að sjá bossa dansinn, þú verður að ná myndum af þessum "gellum".
Alltaf gaman að lesa bloggið þitt.

Söknum þín, Elva og co.

Anonymous said...

oh gawd þetta hljómar allt svo skemmtilega og haha ég vil fá myndir frá homecoming og dansinum!