Úff.. Undanfarnir dagar hafa verið uppteknir hjá mér! Þess vegna hef ég ekkert bloggað nýlega.
Í skólanum síðastliðna viku, þurfti ég að skrifa 2 ritgerðir, tók u.þ.b. 5 próf og þurfti að halda fyrirlestur. Allt þetta gekk mjög vel en þetta er frekar mikið fyrir skiptinema þannig að seinasta vika var frekar stressandi. Auk þess voru field hockey leikir og æfingar. Ég er loksins komin með leyfið en hef samt bara tvisvar fengið að keppa. Þau taka skólaíþróttir mjööööög alvarlega og setja því aðeins þau bestu inná völlinn. Ég er bara nýbyrjuð og ekki næstum því eins góðar og hinar stelpurnar.
Í dag var leikur og ég fékk að taka þátt:P Stóð mig frekar vel þrátt ég segi sjálf frá! Við unnum 4-0.
Um helgina fór ég á AFS-námskeið. Það var últra-mega-úber gaman. Á föstudagskvöldinu var bál og við grilluðum pylsur og "smurphs" (held það sé skrifað svona), en "smurphs" inniheldur venjulegt kex, súkkulaðibita og svo grillaðan sykurpúða. Jummí..
Á laugardagsmorgninum fengum við OF Amerískan morgunmat og fórum svo í hópana sem okkur var skipað að fara í. Í hverjum hópi var einn fullorðinn sjálfboðaliði sem sagði okkur frá öllum öryggismálum, hvernig ætti að leysa vandamál og blablabla.. Eftir hádegismat var myndataka og nokkrir leikir en svo aftur haldið að hópfyrirlestrana. Eftir kvöldmat fengum við smá tíma til að æfa fyrir hæfileikasýninguna sem var haldin á sunnudeginum. Ég safnaði saman alla krakkana sem höfðu ekkert að gera í sýningunni og samdi leikrit. Við kölluðum okkur: "The Talent-LESS Group", (hæfileikalausi hópurinn). Getiði hver fann upp á nafnið, samdi leikritið og safnaði alla saman?:P Yours truely: Guðný Debora Jóhannsdóttir! vúhú:D Þetta var sko gaman:D
Leikritið fjallaði um skiptinema sem var á leið til USA. Skiptineminn sofnaði í flugvélinni og byrjaði að dreyma... Í draumnum stóð hann fyrir utan hús fósturfjölskyldu sinnar og dynglaði bjöllunni. Þegar opnað var dyrnar fraus leikritið og sögumaðurinn segir: "Ó, eitt sem ég gleymdi að nefna... allir í fjölskyldunni eru dvergar". Leikritið byrjar aftur og þá sést skiptineminn frekar hissa á svipinn. Neminn þurfti að beygja sig niður í 90° til að komast inn um dyrnar. Þegar hann var kominn inn elti fjölskyldan hann út um allt. Hann þurfti að fara á klósettið og fjölskyldan elti. Svo kom kvöldmatur og allir settust við matarborðið. Ég var mamman þannig að ég bar fram matinn. Í matinn voru steinar. Ég sagði við skiptinemann: "Hversu marga steina má bjóða þér?", beið ekki eftir svari og skellti þeim á diskinn. Þá sagði hann: "HAAA!?!?", og þá fraus leikritið. Hann vaknaði um þetta leyti og þá vorum við öll aftur komin í flugvélina. Hún áttaði sig á því að þetta var apeins draumur og andaði því léttar. Þá kom flugfreyjan og sagði við nemann: "Afsakaðu herra, má bjóða þér steina?". Skiptineminn fríkaði út, setti upp crazy svip og leikritið fraus! THE END.. You lækí?
Eftir æfinguna á laugardagskvöldinu var "diskó". Það var stór hlaða þarna þar sem "diskóið" var haldið, þau fengu lélegan DJ til að spila og það voru diskóljós og ALLT!:P Að sjálfsögðu var dansað og tjúttað aaaall night long... eða frá 8-11:30. Hahah. Á sunnudeginum var morgunmatur, fyrirlestur um stefnumót, áfengi og þannig stöff. Við höfum öll heyrt þetta þúsund sinnum en.. I guess.. þau þurfa að endurtaka allt 999 sinnum! Eftir hádegismat fengum við meiri æfingartíma fyrir sýninguna og svo klukkan 3 voru allar fósturfjölskyldur komnar og sýningin hófst. Það var úber-dúber gaman, nokkur væmin atriði en þarf alltaf eitthvað svoleiðis right?
Ég sakna ykkar allr mjög mikið! Mér finnst ég vera að missa af svo miklu heima!! Böll, MR-lífið, fjölskyldu-lífið, vina-lífið. DUDES!! Þið verðið að senda mér e-mail reglulega og rita mér fréttir. Þarf ekki að vera merkilegt! Bara eitthvað eins og: "vúps, I just farted". Hahaha:D
Ich bin forvitin poopholes!:P
Eníveis, VERÐ að fara að sofa!
Love ya'll & miss ya'll!!!
Túdels píps
-Guðný Debora MISS-lingur
E.s. MYNDIR! ÉG SETTI INN MYNDIR!!
Tuesday, September 18, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Já ég held það sé nokkuð ljóst hvað þú átt að taka þér fyrir hendur þegar skólagöngu lýkur ... leikritaskrifun!!! Greinilega snilldarverk hér á ferð ;)
Hafðu það gott og skemmtu þér vel!
Kv. frá Köben,
Erla og co :)
Hahaha ekki hafa áhyggjur af því að missa af einhverju hér heima, það eru alllir drulllluöfundsjúkir útí þig haha:)
jaáá tek undir með erlu ;)
en já sniðugt, verð að fara senda þér e-mail svo að þú missir ekki af ÖLlu slúðrinu ;)
Hæhæ aftur
Takk fyrir póstkortið, gaman að fá það. Strákarnir segja hæ.
Ég hefði ekki getað samið betra leikrit. Hæfileikar þínir að safna fólki saman eru ótrúlegir en skriftir og hugmyndaflug er eitthvað sem þú ættir að íhuga að gera af ævistarfi.
Aðal slúðrið er að Britney fá kannski ekki börnin sín(óstaðfest)
Er Davíð "deepthroat" ríkistjórnarinnar? HVER ER AÐ ÝTA Á HNAPPANA!?
Og síðast en ekki síst; heyrst hefur að Baldur Viðar Baldursson hafi mætt á tvo seinustu leiki Breiðabliks.(óstaðfest)
Ég fékk ekkert póstkort Guðný...
Post a Comment