Monday, February 4, 2008

Önn numero dos

Afsökun fyrir að hafa ekki bloggað seinasta sunnudag: Var á fótum til 4 á laugardagskvöldinu (kreisí djamm! neibb, meira svona.. glápa á tv:/) og fór svo á skíði eldsnemma á sunnudagsmorgninum eftir örfárra tíma svefn. Kom svo heim um 7leytið og sofnaði svona 10 mín eftir að ég kom heim:) Þarna hafiði það!..

Okay, svo.. ný önn er hafin. Það þýðir það að ég er með nýja kennslustund og verð að segja að mér finnst hún vera helmingi skemmtilegri en sú fyrri. Hef meira að gera en er samt auðveldara. Fyrsti kennslutíminn er psychology, annar er food for today, þriðji er sama stærðfræðin, fjórði er child development, fimmti er hádegismatur, sjötti er study hall, sjöundi er anatomy og áttundi er media literacy. Psych er skemmtilegt, skemmtilegt fólk. Food for today BOOOORIIING. Stærðfr. same ol' same ol'. Child development er athugavert, mun á einhverju tímapunkti taka að mér plastík barni.. hah. Anatomy er æði en erfitt. Á þriðjudaginn munum við skera upp rottu og svo á föstudag hákarl. Toppurinn er síðan þegar við skerum upp kött, jebb.

Það er í rauninni ekkert það mikið að frétta af mér. Er bara mikið að gera út af skóla og track.

Ú, reyndar fórum við, Janet, Chanél og Firat til Punxsutawny, Pennsylvania. Groundhog's day! vuhuu.. Fyrir þá sem ekki vita, nenni varla að útskýra. Það er bara eitthvað þvílíkt teiti út af þessum grondhog sem annaðhvort sér skugga eða ekki. Ef hann sér skugga þá er aðrar 6 vikur af vetri en ef hann sér ekki skugga þá verður "early spring". Auðvitað sér hann alltaf skugga, sökkar.
Hitti stelpu frá Íslandi en hún kom fyrir 2 vikum og verður í Ohio þessa önn sem skiptinemi. Ég virtist weird þar sem ég knúsaði hana án þess að vita hver hún var og talaði bull-íslensku. Það er bara AWESOME að hitta íslending og að tala íslensku:)

Í kvöld var superbowl. New England patriots og New York giants voru að spila og eins og ég var að vona the giants unnu:D ég hélt að the patriots myndu vita en svo var ekki! vúhú

Anatomy próf á morgun on tissues, íhk. Hjálp.
Góða nótt elskurnar

Og ójá, mamma&pabbi. Ég set myndir inná þegar ég hef myndir til að setja inná. Í augnablikinu hef ég engar. Myndavélin vill ekki hlaða sig, hvad skal jeg göre?

Lovs and hugs
Guðný íslendingurINN

2 comments:

Anonymous said...

ég sakna þín
veðrið er ömurlegt
:(
blogga meira

Anonymous said...

hæ, simon her

þu spurðir mig "hvað eg væri að gera næstu helgi", eg er ekki að gera neitt. afhvejru spyrðu, ertu að koma í bæinn?