Thursday, February 28, 2008

Houston, Texas, með familíunni á ný:)

Vúpsídeisí.. ég hérna reyndi að blogga um daginn en gat ekki skráð mig inná og var þvílíkt að vesenast og reyna en bara komst ekki. Svo núna, komst ég að því að ég notaði vitlaust notendanafn, haha. Ljóshærð er ég.

Allavega, MIKIÐ búið að gerast. Fór meðal annars til Allentown og heimsótti þar Símon Pétur, gamli bekkjarbróður, og var það bara nokkuð gaman! Hengum saman allan laugardaginn og höfum ekki talast við síðan enda komin með leið á hvort öðru eftir einn heilan dag, haha, ER AÐ GRÍNAST SÍMON.

Man ekki eftir miklu sem hefur gerst nema bara úr náinni fortíð.
Á laugardaginn seinasta var Snowball. Það var bara skemmtilegra heldur en ég bjóst við. Einn sætur, frönsku-talandi svisslendingur kom með mér því maður þarf deit á böllun hérna úti sem er bara bölvað vesen en það var samt rosalega gaman:)
Á mánudagsmorgunnninn fór ég svo með flugvélinni til Houston, Texas, til að hitta elsku bestu mömmu, pabba, Erlu og Jonna. Það var algjörtæði. Fór alveg að væla þegar ég sá múttu og pabbalabba:P
Við erum bara búin að vera að versla og svona..
Aðgerðin hennar Erlu er á föstudaginn en hún verður lögð inná á morgunn svo það verður bara "tjillað" á spítalanum. Allir rosalega jákvæðir og ég trúi ekki að þetta fari ekki nema bara vel:)

Aaa.. komst líka að því fyrir ekki svo stuttu að ég ætti ættingja hérna í Texas. Þau eru að bjóða okkur uppá samastað og er það bara awesome. Húsið æði, veðrið Æði ogfólkið að sjálfsögðu ÆÐI:D

Loads of love
Guðný Debora Jóhannsdóttir

P.s. er kominn, loksins, með nýjar myndir en get ekki sett þær inná fyrr en seinna. Lofa samt að það fer að koma!

2 comments:

Anonymous said...

aaeeeeiii thu er svo mikil dulla...!!!!

Anonymous said...

Well written article.