Monday, November 26, 2007

Thanksgiving break

Hvar á ég að byrja?...

...Á fimmtudaginn var thanksgiving, það var ekki mikið annað gert en að borða. Fór reyndar í bíó í fyrsta skipti hérna úti. Það er allt svooo stóóórt! Fékk mér samt að sjálfsögðu ekki poppkorn því að ég var tiltölulega nýbúin að borða stóran, feitan kalkún, twice-baked kartöflur og svo í eftirrétt var pumpkin-crémbullet (eða hvernig sem þetta er stafað), applepie og heimatilbúinn karamellu ís. Deeeeelicious!!
...Á föstudeginum hékk ég aðallega með Natalie og hennar vinum. Það sem var athugaverðast var þegar vinkona hennar sagði: "Oh, my eyeball is itchy!", og þá sagði ég: "Oh, I love to rub my balls". HAHA. Ætlaði að sjálfsögðu að segja eyeballs. Þetta var no doubt hápunktur dagsins.
...Á laugardeginum héldum við uppá afmæli Natalie en hún á afmæli á þriðjudaginn en fer aftur til Indiana á morgun þannig við ákváðum að halda uppá það í gær. Borðuðum hádegismat á einhvern sjávarveitingarstað (hennar ósk!!) og fórum svo á dirty brúðuleikrit. Það var obbolega fyndið:D Svo var afmælisdinnerinn og við borðuðum pasta með laxasósu (hennar ósk!!).
...Í dag, sunnudagurinn 25. nóvember, fór ég að versla fyrir jólagjafir. Finito! Það er það eina sem ég hef gert í dag að viti, nú og að fara í ræktina að sjálfsögðu.

Ég er í fimm daga fríi, fjórir dagar þegar liðnir og ég hef ekki sofið út einu sinni! Afhverju? Því það er eini tíminn til að fara í ræktina. Kiiilll míí! Það er reyndar gaman í ræktinni! Trúiði því eður ei! Guddubuddu finnst gaman í ræktinni, það er eitthvað nýtt! Ætli ég sé veik?

Eníveis, farin að glápa á tv, jólamyndirnar byrjaðar.
Lovs!
Túdels
Guddabudda

P.s. myndiiiiir!! loksins:P

Monday, November 19, 2007

Greensburg Salem < Mt. Lebanon.. tíhí

Sunnudagur, blogg.

Update:
Á fimmtudaginn eftir skóla fór ég til Greensburg Salem. Þar gisti ég hjá tímabundni fósturfamilíu. Það var... awkward. Gista hjá einhverjum sem þú þekkir ekki baun í 2 daga er eitthvað sem allir verða að prófa, hah.
Á fimmtudagskvöldinu var ball á Greensburg Salem High School þannig að ég dressaði mig upp en þá kom í ljós að þetta var bara eitthvað leim ball og allir voru í eins stuttermabol. Ég stóð út úr, og upp úr (þar sem ég var sú stærsta þarna).
Svo fórum við öll heim með okkar fólki. Ég fór að sofa um leið. Ú, btw, er búin að vera óvenjulega þreytt síðustu vikurnar og allir voru að segja mér að þetta gæti verið mono! Trúi því varla þar sem ég tel mig ekki vera veika!
Eníveis.. á föstudeginum fór ég í skólann þeirra og stundaði freshmen tíma allan daginn. Þau eru með block-kerfi. Það virkar þannig að þau eru bara með 4 kennslustundir en ein kennslustund tekur 90 mínútur! Jebb, ég er að tala um EINN OG HÁLFAN TÍMA!! Ég fékk margar athugaverðar spurningar eins og: "Do you have a boyfriend?". Krakkinn sem spurði er 14 ára gamall, hahaha.
Það sem var athugaverðast var að það var a lock-down!!! Það þýðir að lögreglan kemur í skólann og allir eru læstir inni á meðan löggan fer um með hunda og leitar af dópi. Þeir leita ekki allar kennslustofur en þeir ákváðu að leita í minni því þeir grunuðu einhvern í bekknum. Þeir höfðu rétt fyrir sig þar sem þeir fundu ólöglega stera í bekknum og tveir í bekknum voru undir áhrifum ólöglegra vímuefna. Þessir tveir reyndu að flýja en þeir náðust og meiddu sig. Þetta var mjög áhugaverður dagur!

Föstudagskvöldið fórum við öll á skauta, það var... séstakt.
Ég sökka btw, haha.

Á laugardeginum var skrúðganga. Þurftum að bíða í tvo tíma í frjósandi kulda og fyrir framan okkur var bíll sem spilaði SAAAAMAAA JÓLALAGIÐ Í TVOOOOO TÍMA!!
Loksins byrjaði gangan og það tók klukkutíma!! það var beisiklí dagurinn minn á laugardeginum. Restin var bara að koma með heim og það tók um 2 tíma út af umferðinni.

Í dag fór ég í ræktina, horfði á leikinn (steelers vs. NY). Bölvaður leikur. Töpuðum í overtime. Eeeeníveis, þetta er ekki eitthvað sem ykkur finnst áhugavert.

Tölvan að verða batteríslaus!!
Kem með betra blogg næst þar sem það er löööng 5 daga helgi. Thanksgiving and all, you know..

Els&Sakn!
Guðný Debora Jóhannsdóttir
Túdels

Monday, November 12, 2007

Vúbdídú

oh men.. Ligg upp í rúmi slefandi úr þreytu EN NEI ég ætla sko að standa við því sem ég sagði! Blogg á sunnudögum. Dömur mínar og herrar.. blogg á sunnudögum!

Ekki get ég sagt frá margt. Eina spennandi sem ég hef gert þessa vikuna var að fara á the body exhibition. That's somethin' alright!
Úúff.. Eftirfarandi er ekki fyrir viðkvæma.
Fór á safn downtown sem heitir Carneigi's science center og þar var sýning, sýning sem ég mun aldrei fá að sjá aftur! Það er ótrúlegt hvað tækni og vísindi geta gert nú til dags.
Okey, to the point!
Þetta var sýning sem innihélt alvöru, dauð lík. Lík sem voru skorin hér og þar til að sýna líffærin. Ég sá öll líffæri líkamans, taugakerfið, bein.. allt sem þú getur hugsað þér. Ég sá skinn af manni. Jebb, allt líkamsskinnið (meira að segja forhúðin á kallinum, haha, hrmm..ekki fyndið). Ég sá hjartað, inní hjartað, heilann, inní heilann. Ég get ekki lýst þessu betur en svona. Þetta var algjörlega geðveikt. Hvatti mig til að verða læknir! Þetta var svo fróðlegt.. úff
Margir hugsa þegar þeir sjá þetta: "það var farið illa með þessi lík blablalba..". Þau hugsa ekki hvað þetta gerir gott fyrir framtíðar lækni og aðra.
Ég velti reyndar alveg fyrir mér hvernig þetta fólk dó og hvort þau vissu fyrir fram hvort þau myndu enda á safni..
Ú, annað sem var á þessu safni! Börn og embryo (kann ekki að skrifa á íslensku, sjitt). Allt frá 3 vikna gamalt til 9 mánaða gamalt. Ótrúlegt..

hmm.. á mánudaginn var steelers partý hjá Franny. Það var rooosalega gaman. Skemmti mér konunglega. Þið vitið að partý hérna er ekki eins og partý heima. Það er ekki drukkið for one thing.
Ég var ofsa kúl og vissi langmest um amerískan fótbolta þarna. Nokkrir guttar sem héldu að þeir vissu eitthvað um þetta but I proved them wrong og nuddaði því í andlitið á þeim. Múhaha.. Þetta var osom:D Fannst ég vera svo klár:D haha.

Eeeeníveis. Farin að lúlla. Skóli á mrg, ekkert spennó.
Góða nótt
Lovs
Guðný Debora Jóhannsdóttir

E.s. ég SET inn myndir þessa viku! Ég lofa. Nú vitiði að ég get staðið við loforð;) Þannig að Æ WILL DÚ IT!

TÚDELS

Sunday, November 4, 2007

Ég held við loforð. Sunnudagur, nýtt blogg.

Ég hef nokkrar fréttir að færa. Bæði sorglegar, skemmtilegar, fyndnar.. þið skiljið hvað ég á við;)

Halloween var á miðvikudaginn. Ég fór hins vegar ekki út trick or treating en fór í staðinn heim til hús vinkonu minnar og hittumst við þar nokkrir krakkar til að horfa á hryllingsmynd. Þið vitið flest að ég er ekki sú manneskju sem kýs sjálfviljug að horfa á hryllingsmynd. Ég spjaraði mig þó. Hélt bara fyrir eyrun og allt var betra eftir það. Myndin sem við horfðum á heitir children of corn.. eða eitthvað.

Daginn eftir, þegar ég var á röltinu á leiðinni í skólann sá ég billjón fréttabíla og þyrlur og eitthvað vesen. Ég hafði ekki hugmynd um hvað gengi á en þegar ég kom inní skólann og inní fyrsta kennslutímann var tilkynnt í "útvarpinu" að á halloween hafi strákur lamið fyrrverandi kærustuna sína með hamri og síðan stokkið fyrir framan lest til að reyna að fremja sjálfsmorð. Þessir krakkar eru í skólanum mínum og þess vegna voru allir þessir fréttabílar og þyrlur. En allavega, stelpan lifði en strákurinn er enn þá á spítalanum meðvitundalaus og mun líklegast ekki vakna aftur.

Eníveis.. á föstudaginn var senior plegde. Það snýst um að kaupa senior-ana og svo fær einn heppinn kaupandi að klæða senior-inn í þau föt sem kaupandanum langar til að klæða senior-inn í. Ég fékk að klæða Chanél í og að sjálfsögðu, tók ég upp íslensku "djammfötin" (fjólubláa sundbolinn minn, silfur/bleikar leggings, geeðeveik sólgleraugu, rauður varalitur og hárið var dressað eins og Svala Björg). Set inn myndir um leið og ég get!

Á föstudagskvöldinu fórum við, meðlimir í AFS klúbbnum í skólanum, í svona Drive-in movie. Það var sérstök reynsla. NÁKVÆMLEGA eins og í Greace!! Það voru meira að segja sömu auglýsingarnar! Pulsan að dansa og það stöff.. það var osom. Sáum The Bee Movie og The Game Plan. Skemmtilegri myndir heldur en ég bjóst við!!

Jæja, tölvan að verða batteríslaus, sit nefnilega niðrí fyrir framan 50" sjónvarpinu að horfa á bíóyndir. Það er svo erfitt að velja um stöð!! Það er frikkin 700 stöðvar!! Common..
Allavega, þarf s.s. að fara:]

Lovs
Guðný Debora Jóhannsdóttir