Monday, June 25, 2007

45 dagar..

Það styttist óðfluga í brottför en ég er nú komin með nákvæman brottfarartíma. 9. ágúst, 10:30. Vil helst bara hætta í vinnunni, vera heima og sofa þangað til 2. ágúst. Það væri næs:]
Á morgun er ég að fara með familíunni á Shrek 3, þar á meðal í lúxussal. Margir að segja að sú mynd sé briller! Svo næstu helgi er ég að fara í útilegu með familíunni. S.s. familí-time ahead.
Mútta og brósi komu heim í nótt frá... manikki. En mamma vakti mig í morgun með vælu og skömm. "Allt húsið er í drasli. Þvottur út um allt og rusl. Mímímí!". Það var ekki sagt "hæ" eða "góðan daginn", bara skellt þessu beint framan í morgunfúla fésið á mér. Ekkert sérlega gaman. Reyndar er alveg eitthvað til í þessu:/ Það er kominn tími til að ryksuga inni hjá mér þar sem ég óttast það að nýtt lífríki sé að myndast undir rúminu. Crapporoni.
Guðný
Túdels:]

Thursday, June 21, 2007

Galadinner, bláa lónið n'stuff

Undanfarna daga hefur verið shitafucka mikið að gera hjá mér. Á fimmtudaginn fóru flest allir skiptinemarnir í bláa lónið sem er btw not so blue, frekar svona pissugrænt:/ Eníveis. Eftir "bláa" lónið fórum við á Hróa hött. Á föstudaginn var enginn sérstakur dagur, minnir mig o.O ég er að fá frikkin alzheimer.
Laugardagurinn var fab! Fór í galadinner í tilefni 50 ára afmæli AFS á Íslandi. Það var haldin þvílíkt rómó veisla á hótel Nordica, sem nú er í eigu Hilton familíunnar. Framúrskarandi matur kom úr eldhúsi Vox, jummí:] Svo var sungið og jaríjarí. Eftir allt átið var tjúttað með gamla fólkinu. Furðulegt hvað mér þykir það drulluskemmtilegt! Eins og 80 ára afmælið sem ég fór í á Tálknafirði fyrir hálfu ári rsome. Skiptinemarnir sem eru hér í landi eru komnir með betri íslensku en ég! Og ekki mun íslenskan batna þegar ég hverf á brott í heilt ár. Fukk o.O
17. júní var feitur dagur... Ég og hulda gerðum eins og við gerum best. Borða. Fórum niðrí bæ um 5 leytið og komum aftur heim um 9 leytið og ákváðum þá að fara aftur niðrí bæ. Sátum þar á Arnarhóli allt kvöldið, frjósandi í hel og hlustuðum og ágæta hljómleika.
Í morgun mætti ég klukkutíma of seint í vinnuna. Ég fattaði það samt ekki fyrr en ég var komin niðrí vinnu. Þá hafði ég stillt vekjaraklukkuna einum tíma seinna en ég átti og verið það þreytt að nenna ekki að líta aaaalmennilega á klukkuna! Fatt me? Ruglaður dagur o.O
Líklega leiðinlegasta blogg í heimi but æm so bored.. Frí á morgun Ég er aumingi, hahh
Þangað til næst (lame)
Debora

Túdels:]

Wednesday, June 13, 2007

Tilraun númer 2,3,4 eða jafnvel 5.

Wellwellwell..
Enn og aftur legg ég á mig þessa djarfa áskorun til að halda uppi vefsíðu. Veit ekki hvernig það fer en who does? Vefsíðan verður aðallega notuð fyrir mig til að blogga um siði mína og venjur í AMERÍKU>.< jeah beibí. Fyrir þá sem ekki þegar vita þá liggur leið mín til US and A milli 8-10. ágúst og þar verð ég í ár, tíhí. Núna er ég bara wörkin my ass off til að safna smá klinki fyrir föt n'stuff:] Plönin eru að fara með eina tösku út og koma með fimm tilbaka. Svít.

Prófin eru búin. AWESOMEISM. Náði mínu fyrsta ári í MR sem ég tel vera helvíti gott afrek. Menntaskólaárin eru tuff. En ekki þarf ég að hafa major áhyggjur af því fyrr en eftir ár því ég verð vitaskuld úti þangað til. Fer reyndar nottlega (hahh) í skóla úti, en það er seinnitímavandamál! Ætla mér samt að útskrifast úr highschool en það verður bara últra-mega fjör.

Þangað til næst,Debora
Túdels poopholes:]