Monday, November 12, 2007

Vúbdídú

oh men.. Ligg upp í rúmi slefandi úr þreytu EN NEI ég ætla sko að standa við því sem ég sagði! Blogg á sunnudögum. Dömur mínar og herrar.. blogg á sunnudögum!

Ekki get ég sagt frá margt. Eina spennandi sem ég hef gert þessa vikuna var að fara á the body exhibition. That's somethin' alright!
Úúff.. Eftirfarandi er ekki fyrir viðkvæma.
Fór á safn downtown sem heitir Carneigi's science center og þar var sýning, sýning sem ég mun aldrei fá að sjá aftur! Það er ótrúlegt hvað tækni og vísindi geta gert nú til dags.
Okey, to the point!
Þetta var sýning sem innihélt alvöru, dauð lík. Lík sem voru skorin hér og þar til að sýna líffærin. Ég sá öll líffæri líkamans, taugakerfið, bein.. allt sem þú getur hugsað þér. Ég sá skinn af manni. Jebb, allt líkamsskinnið (meira að segja forhúðin á kallinum, haha, hrmm..ekki fyndið). Ég sá hjartað, inní hjartað, heilann, inní heilann. Ég get ekki lýst þessu betur en svona. Þetta var algjörlega geðveikt. Hvatti mig til að verða læknir! Þetta var svo fróðlegt.. úff
Margir hugsa þegar þeir sjá þetta: "það var farið illa með þessi lík blablalba..". Þau hugsa ekki hvað þetta gerir gott fyrir framtíðar lækni og aðra.
Ég velti reyndar alveg fyrir mér hvernig þetta fólk dó og hvort þau vissu fyrir fram hvort þau myndu enda á safni..
Ú, annað sem var á þessu safni! Börn og embryo (kann ekki að skrifa á íslensku, sjitt). Allt frá 3 vikna gamalt til 9 mánaða gamalt. Ótrúlegt..

hmm.. á mánudaginn var steelers partý hjá Franny. Það var rooosalega gaman. Skemmti mér konunglega. Þið vitið að partý hérna er ekki eins og partý heima. Það er ekki drukkið for one thing.
Ég var ofsa kúl og vissi langmest um amerískan fótbolta þarna. Nokkrir guttar sem héldu að þeir vissu eitthvað um þetta but I proved them wrong og nuddaði því í andlitið á þeim. Múhaha.. Þetta var osom:D Fannst ég vera svo klár:D haha.

Eeeeníveis. Farin að lúlla. Skóli á mrg, ekkert spennó.
Góða nótt
Lovs
Guðný Debora Jóhannsdóttir

E.s. ég SET inn myndir þessa viku! Ég lofa. Nú vitiði að ég get staðið við loforð;) Þannig að Æ WILL DÚ IT!

TÚDELS

3 comments:

Anonymous said...

Yay þú stóðst við þitt!!

Meeen, alvöru lík ugh. Næs mér varð óglatt í svínakrufningu í skólanum um daginn.

Anonymous said...

systir mín var einmitt að segja mér frá því að hún hefði farið í svona í NY um daginn. henni varð hálfómótt af þessu öllusaman, þú hefur staðið þig haha ;)

en þetta sándar allt glæsilegt hjá þér þarna, as usual :)
heyrí þér lovbun! :D

ps. jóna.. svínakrufning what?!

Anonymous said...

HEI ég fór á þetta safn í fyrra með skólanum! þetta er sjúklega creepy haha! en já vona að þú hafir það gott :)
-Auður sem var með þér í kór fyrir svona hundrað árum og rakst á bloggið þitt