Sunnudagur, blogg.
Update:
Á fimmtudaginn eftir skóla fór ég til Greensburg Salem. Þar gisti ég hjá tímabundni fósturfamilíu. Það var... awkward. Gista hjá einhverjum sem þú þekkir ekki baun í 2 daga er eitthvað sem allir verða að prófa, hah.
Á fimmtudagskvöldinu var ball á Greensburg Salem High School þannig að ég dressaði mig upp en þá kom í ljós að þetta var bara eitthvað leim ball og allir voru í eins stuttermabol. Ég stóð út úr, og upp úr (þar sem ég var sú stærsta þarna).
Svo fórum við öll heim með okkar fólki. Ég fór að sofa um leið. Ú, btw, er búin að vera óvenjulega þreytt síðustu vikurnar og allir voru að segja mér að þetta gæti verið mono! Trúi því varla þar sem ég tel mig ekki vera veika!
Eníveis.. á föstudeginum fór ég í skólann þeirra og stundaði freshmen tíma allan daginn. Þau eru með block-kerfi. Það virkar þannig að þau eru bara með 4 kennslustundir en ein kennslustund tekur 90 mínútur! Jebb, ég er að tala um EINN OG HÁLFAN TÍMA!! Ég fékk margar athugaverðar spurningar eins og: "Do you have a boyfriend?". Krakkinn sem spurði er 14 ára gamall, hahaha.
Það sem var athugaverðast var að það var a lock-down!!! Það þýðir að lögreglan kemur í skólann og allir eru læstir inni á meðan löggan fer um með hunda og leitar af dópi. Þeir leita ekki allar kennslustofur en þeir ákváðu að leita í minni því þeir grunuðu einhvern í bekknum. Þeir höfðu rétt fyrir sig þar sem þeir fundu ólöglega stera í bekknum og tveir í bekknum voru undir áhrifum ólöglegra vímuefna. Þessir tveir reyndu að flýja en þeir náðust og meiddu sig. Þetta var mjög áhugaverður dagur!
Föstudagskvöldið fórum við öll á skauta, það var... séstakt.
Ég sökka btw, haha.
Á laugardeginum var skrúðganga. Þurftum að bíða í tvo tíma í frjósandi kulda og fyrir framan okkur var bíll sem spilaði SAAAAMAAA JÓLALAGIÐ Í TVOOOOO TÍMA!!
Loksins byrjaði gangan og það tók klukkutíma!! það var beisiklí dagurinn minn á laugardeginum. Restin var bara að koma með heim og það tók um 2 tíma út af umferðinni.
Í dag fór ég í ræktina, horfði á leikinn (steelers vs. NY). Bölvaður leikur. Töpuðum í overtime. Eeeeníveis, þetta er ekki eitthvað sem ykkur finnst áhugavert.
Tölvan að verða batteríslaus!!
Kem með betra blogg næst þar sem það er löööng 5 daga helgi. Thanksgiving and all, you know..
Els&Sakn!
Guðný Debora Jóhannsdóttir
Túdels
Monday, November 19, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Ertu að segja mér Guðný að þú hafir eitthvað á móti yngri mönnum??? Hehe ... það mun breytast í framtíðinni ... grrrr ;)
Kv. Erla big sis ;)
haha, sammála fyrri ræðumanni
en já, það er nú meira dramað sem er alltaf í kringum þig mín kæra. þú gætir skrifað enn einn dramaþáttinn fyrir skjáeinn þegar aa þú kemur heim ;)
kv. hbizzle
Hahaha 90 mín, mér finnst 60 alveg nóóóg
:D
vá 2 dagar i 4 x 90 min timum. Reyndu a hverjum degi elskan, og þa skiluru mig ;)
kv.simonp
jebb, skólinn sökkar. Ég hætti ekkert að blogga, síðan min eyðilagðist og eg byrjaði með nyja = www.simonp.bloggar.is
jamm, thanksgiving er a morgun, eg er ekkert speentur en þetta er samt alltílæ, frí i skolnum og goður matur:D hvað ert þu að gera um thanksgiving
Post a Comment