Sunday, November 4, 2007

Ég held við loforð. Sunnudagur, nýtt blogg.

Ég hef nokkrar fréttir að færa. Bæði sorglegar, skemmtilegar, fyndnar.. þið skiljið hvað ég á við;)

Halloween var á miðvikudaginn. Ég fór hins vegar ekki út trick or treating en fór í staðinn heim til hús vinkonu minnar og hittumst við þar nokkrir krakkar til að horfa á hryllingsmynd. Þið vitið flest að ég er ekki sú manneskju sem kýs sjálfviljug að horfa á hryllingsmynd. Ég spjaraði mig þó. Hélt bara fyrir eyrun og allt var betra eftir það. Myndin sem við horfðum á heitir children of corn.. eða eitthvað.

Daginn eftir, þegar ég var á röltinu á leiðinni í skólann sá ég billjón fréttabíla og þyrlur og eitthvað vesen. Ég hafði ekki hugmynd um hvað gengi á en þegar ég kom inní skólann og inní fyrsta kennslutímann var tilkynnt í "útvarpinu" að á halloween hafi strákur lamið fyrrverandi kærustuna sína með hamri og síðan stokkið fyrir framan lest til að reyna að fremja sjálfsmorð. Þessir krakkar eru í skólanum mínum og þess vegna voru allir þessir fréttabílar og þyrlur. En allavega, stelpan lifði en strákurinn er enn þá á spítalanum meðvitundalaus og mun líklegast ekki vakna aftur.

Eníveis.. á föstudaginn var senior plegde. Það snýst um að kaupa senior-ana og svo fær einn heppinn kaupandi að klæða senior-inn í þau föt sem kaupandanum langar til að klæða senior-inn í. Ég fékk að klæða Chanél í og að sjálfsögðu, tók ég upp íslensku "djammfötin" (fjólubláa sundbolinn minn, silfur/bleikar leggings, geeðeveik sólgleraugu, rauður varalitur og hárið var dressað eins og Svala Björg). Set inn myndir um leið og ég get!

Á föstudagskvöldinu fórum við, meðlimir í AFS klúbbnum í skólanum, í svona Drive-in movie. Það var sérstök reynsla. NÁKVÆMLEGA eins og í Greace!! Það voru meira að segja sömu auglýsingarnar! Pulsan að dansa og það stöff.. það var osom. Sáum The Bee Movie og The Game Plan. Skemmtilegri myndir heldur en ég bjóst við!!

Jæja, tölvan að verða batteríslaus, sit nefnilega niðrí fyrir framan 50" sjónvarpinu að horfa á bíóyndir. Það er svo erfitt að velja um stöð!! Það er frikkin 700 stöðvar!! Common..
Allavega, þarf s.s. að fara:]

Lovs
Guðný Debora Jóhannsdóttir

5 comments:

hildur said...

Gott hjá þér dúllan mín....kv fá kalda Íslandi, þín besta mamma.

Jóna said...

Hahaha, váá bílabíó. Grease. . . mmm mig langar.
Aníveis, leiðinlegt að heyra um strákinn, hamarinn, fyrrverandi og lestina. Ameríkanar, hmm. Eitthvað sem ég ímynda mér ekki að gerist á íslandi. . .

:D:D þú stóðst við loforðið

sara said...

hey eina og hjá MS í 85 vikunni, það er einmitt bílabíó á mrg hjá mér=D. Samt örugglega ekki eins ekta og þarna úti en ég fæ smá smakk af gleðinni;)

Baldur Zuko said...

Guðný þrátt fyrir að þú teljir þig rosalega yfir aðra því þú ert skiptinemi í USA þá er það almenn kurteisi að stafa Grease rétt. Ekkert "c" í Grease. COMMON!
var að kaupa mér leðurjakka.

Anonymous said...

contempt building ticket inevitably madrid undg commence transfer during ashoka range
lolikneri havaqatsu