Sunday, October 28, 2007

Svít Seventeen..?

Enn og aftur var biðin frekar löng. Hef ákveðið að blogga á sunnudögum héðan í frá. Þannig að þá vitið þið að það bíður nýtt og ferskt blogg eftir ykkur á mánudeginum. Hvernig sándar það??

Seinasta sunnudag, 21. október, átti ég afmæli. Afmælisdagurinn var ekkert spes; matur, kaka. Laugardagurinn var hins vegar æði! Eftir seinasta field hockey leikinn okkar ákváðum við stelpurnar að hittast hjá Caroline og tjilla hjá henni, eða það var það sem ég hélt.. Þegar ég kom á staðinn stukku allar stelpurnar út og öskruðu SURPRISE!! Mig dauðbrá og ég hafði ekki hugmynd um að þær ætluðu að halda surprise partý fyrir mig!:D Það var borðað og spjallað, spilað og leikið. Eftir það fór ég beinustu leið heim til Chanél og þar var hún með smá campout fyrir mig og Franny. Það var geðveikt gaman:D Skemmtum okkur konunglega! Smakkaði osom Suður-Afríkanskan mat og hann var æði. Næsta morgun komu Janet og Don að sækja mig. Og þið vitið rest; matur, kaka.
Ú! ég fékk afmælisgjafir frá fjölskyldu minni heima:D Varð úber ánægð:D Fékk frá Erlu og co. náttföt og bol (er btw búin að vera í náttfötunum síðan Erla! Takk:D), fékk frá elvu geheheðveikt svalt veski! svona bleikt pallíettu veski, bjútí-bláa spöng og geðveikan klút (Takk Elva!:D) og svo fékk ég frá múttu&pabbalabba&markús geeeðveika peysu frá rokk og rósir (fólk er búið að vera hrósa peysuna þvílíkt:D ég er mega sátt:D haha), cintamani peysu sem kemur sig vel þar sem að hitastigið á morgunn á að vera við frostmark og ég tók ekki mikið af hlýjum fötum með mig út. Takk æðislega elskurnar:D Lovjú'all<3

Á miðvikudaginn er Halloween þannig að þessa helgi var mikið þannig stöff um að vera. Það var Halloween skrúðganga í gær sem AFS skiptinemarnir fengu að taka þátt í. Eftir gönguna héldu allir heim til mín að skera út pumpkin, borða og við fórum í nokkra leiki.
Chanél kom og við tvær fórum út. Löbbuðum niðrí banka og þar kom Franny að sækja okkur. Hún fór með okkur í eitt hús ömmu hennar og afa þar sem margt fólk var að mála og við ætluðum bara að koma og hjálpa til. Við þrjár vorum búnar að ákveða að fara í bíó á miðnætursýningu en áttum eftir að fá leyfi. Fórum þá heim til Chanél þar sem það var á leiðinni til hús ömmu Franny's og afa. Chanél fékk leyfi þó furða sé og ég fékk einnig leyfi frá Janet.
Komum á staðinn og fólk var hætt að mála. Fólkið sem var þarna vantaði víst eitthvað úr bílnum þannig að Franny lenti í klípu þar sem við komum örlítið of seint.
Franny varð "grounded"!!! Common..!! Hún var grounded vegna þess að við komum fimm mínútum of seint og það var allt út af því að við stoppuðum hjá mömmu Chanél í fimm mínútur til að spyrja hvort hún mætti fara í bíó og það var í leiðinni þangað! Henni var bannað að fara í bíó, bannað að fara að hitta kæróinn sinn í dag og bannað að hitta hann á miðvikudaginn. Hún hitti þann gutta seinast á homecoming. hahah.. Þetta fannst mér vera örlítið og langt gengið fyrir að koma fimm mínútur of seint. Ég var þarna á staðnum þegar hún varð grounded þannig að ég veit það með vissu að það var ekkert meira en það.
Amerískar fjölskyldur eru svo skrýtnar. Þau bera enga virðingu fyrir það sem barnið þeirra segir, ekki fyrr en barnið fer í háskóla. Þetta er fáranlegt. Franny er 18 að verða 19 ára og ég stóð þarna heyra mömmu hennar segja við hana: "You're a CHILD, Franny".. Ég get ekki lýst þessu betur en þetta.
Svona gengur á hjá Chanél líka. Hún fær enga virðingu frá föreldrum sínum. Stórfurðulegt alveg, haha:P

Eníveis.. Janet var að segja mér að í Janúar væri stelpa að koma sem skiptinemi hingað frá Íslandi!! Get ekki beðið:D:D:D Fæ að tala íslensku!!!:D Eins og þið hafið ábyggilega tekið eftir, þá er íslenskan alltaf að hörfa smátt og smátt og það er algjörlega að fara með mig! Vil ekki gleyma þetta fagra tungumál. Já, ég segi það enn og aftur, faaagra tungumál!:P

Ég er annars farin að læra. Sakn&elsk..
Guðný Debora

P.s. komnar myndir!

6 comments:

Anonymous said...

Yay vikulegt blogg:) mánudagar verða þá góðir dagar hér eftir :)

Til hamingju með seventeenið og það allt og maður hefur heyrt margar tröllasögur af amerískum foreldrum. Guði sé lof fyrir mína haha

hildur said...

Gaman að heyra frá þér elsku dúllan mín. Gott að þú fílaðir peysuna. Love you mamma og pabbi

Anonymous said...

Til hammo med ammo :D
Uff islenskan min er svo leleg ad halfa vaeri nog! Tegar eg hitti islenskan skiptinema um daginn var eins og vid vaerum 3ja ara ;) Hahaha
Annars gott ad tad gengur vel :)

-Steiney i Astraliu

Anonymous said...

Til hamingju með afmælið ;*
og til hamingju með Halloween!
Váá klikk hvað fólk er strangt þarna, ég er hætt að kvarta yfir mömmu og pabba..

Anonymous said...

mmm ég finn æykt af nýju bloggi. . .

mundu sunnudagur
þú lofaðir:D:D

Anonymous said...

hæhæ, simon petur her:D

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ:D

ætlaði bara að seigja að eg skil allveg hvað þu meinar með foreldrana her, annað hvort hafa allir foreldrar þennan þvílíka aga yfir krökkonum eða krakkarnir þora ekki að standa upp fyrir þeim. verðum i bandi.
P.S. ertu ekki að stela "blogga a öllum sunnudögum frá mer".:D