Wednesday, September 26, 2007

Exhausted!!

Ætla að segja ykkur aðeins frá komandi dögum og þeim liðnum einnig en þá vonandi skiljiði afhverju ég er ekki búin að vera mikill bloggari!

Í seinustu viku hafði ég trilljón verkefnum að skila. Ég held að kennararnir átti sig ekki á því að ég er SKIPTINEMI frá ÍSLANDI. Ég vissi ekki að lærdómurinn myndi verða svona mikill. Auk heimalærdómsins voru æfingar og leikir en á fimmtudaginn hlupum við það sem við köllum “The Gontlent”. Þá verðum við að hlaupa 4 hringi (hlaupabrautahringi) á 8 mín., svo 2 hringi á 4 mín., svo 1 hring á 2 mín. Og svo hálfan hring á 40 sec. Þetta virðist kannski auðvelt en óhellnó! Við erum nánast að spretta 2 mílur (ég er komin með mílu-og fareignheitsystemið í mig). Við fengum frí frá æfingu á föstudaginn en ég ákvað að fara út að hlaupa. Svo um kvöldið fór ég á minn fyrsta menntaskóla amerískan fótboltaleik. Það var ÆÐI. Það voru klappstýrur, hljómsveitin spilaði, drumline (GEÐVEIKT) og svo voru allir nemarnir klæddir bláu og búnir að mála sig einhvern veginn í framan:D Við unnum að sjálfsögðu leikinn og pabbi og mamma hringdu í mig... Kvöldið hefði ekki getað verið betra!

Svo á laugardaginn fór ég út að hlaupa, lærði og fór síðan að undirbúa “partýið” sem ég hélt. Ég bauð öllum field hockey stelpunum heim. Gerði boðsmiða og allur pakkinn, haha, en það hljómaði svo: “International campout! 207 Jefferson Dr. blablabla.. So get ready for a wild African fire, some tasty Chinese takeout and some cool Icelandic music!” Haha:D Ég setti upp tjöld og gerði garðinn rosa Afríkulegan. Spjölluðum mikið við eldinn og grilluðum sykurpúða.

Á sunudaginn fór ég út að hlaupa, surprise, en ég hafði áætlað að fara niður á völl og hlaupa “the gontlent” en á leiðinni þangað datt ég frekar harkalega á gangstéttinni og er núna öll rispuð og marin á hægri hlið. Snéri því þá bara við og hljóp heim í sturtu. Ég tók svo bara til eftir laugardagskvöldið, lærði og fór svo að veeersla. Endaði reyndar stutt. Keypti lítið fyrir sjálfa mig!

Á mánudaginn þurfti ég að fara fyrr úr skólanum vegna þess að það var leikur. Við töpuðum, í sudden-death! Algjör bömmer því þetta lið sem keppti á móti okkur sökkar. Það var eins og við værum í slómósíon! Við vorum ekki að standa okkur.

Í dag (þriðjudagur) fór ég ekki í skólann en fór í field-trip með öðrum skiptinemum. Við fórum downtown Pittsburgh. Ég hef séð þetta allt nokkrum sinnum áður en það sem maður gerir til að sleppa við skólann.. Ég fór samt á æfingu og ég er alltaf að gera betur og betur í þessu:P Vúhú!!
Á morgunn fer ég heldur ekki í skólann heldur fer til Cleveland. Er einnig að fara með hinum skiptinemunum. Þetta ferðalag mun taka allan daginn en þarf að vakna kl. 6, búhú. Við ætlum að skoða safnið: “The Rock and Roll Hall of Fame”. Það verður vonandi gaman. Kem heim um 7leytið og fer þá beint að keppa!! Crap! Hvar á ég að fitta heimalærdómnum inn??

Eníveis.. Er að keppa á fimmtudaginn og á föstudaginn og á föstudaginn eftir leikinn verður sleep-over hjá Sinead. Hún er æði. Á laugardagsmorguninn fer ég með Janet og Chanél (stelpan frá Afríku) til Niagra Falls og gistum við þar eina nótt en þurfum svo að bruna aftur heim á sunnudagsmorgninum því það tekur u.þ.b. 3 og hálfan tíma að keyra og the senior boatride er á sunnudeginum. Ég er með æðislegan hóp fyrir the boatride!! Meðal þeirra manneskja í hópnum verða Sinead og Claire. Ætlum að taka lestina niðrá höfn, allar fínar og flottar (þetta verður geggjað!), en þurfum að vera mætt þangað um 6leytið.

Jæja, þarf að drífa mig í bólið núna!
lovjúall&missjúall
túdels
Guðný Debora, sem er btw komin með nickname! HAHA.. The IF: Icelandic Freak. HAHA.. Þetta er bara bull. Túdels.

Ú! P.s. Nýjar myndir komnar.

Ú! P.s. 2. Íslenskan er að hverfa á brott. Ekki taka mark á stafsetningu, málfar eða bara hvað sem er.

5 comments:

Anonymous said...

yes it's me again!
Þú ert svo dugleg elsku Guðný mín, er ekkert smá stolt af þér. Skemmtu þér vel um helgina og ekki tapa þér í lærdómnum :)

Anonymous said...

Hahhaah the IF :D snilld! Vááa hvað er mikið að gerast hjá þér :D Ertu ekki alveg orðin fáranlega horuð, alltaf að hlaupa.. eins gott að þú fáir sykurpúða inná milli ;)

Anonymous said...

Frábært, þú verður orðin cameron diaz 2 þegar þú kemur tilbaka! Meeen, ætti ég þurfi ekki að slaka á hamborgurum og sælgæti! þá gæit ég verið drew barrymore og þá þurfum við bara að finna Lucy lou(?)

Og hey, vinkona mín á vinkonu sem var skiptinemi í USA og hún útskrifaðist sem senior og komst beint inni háskóla úti þrátt fyrir að vera bara búin með 1 og hálft ár í menntó hér heima. . . Kannski þú ættir að kanna það? Við gætum farið saman í Yale:D haha

Anonymous said...

[B]NZBsRus.com[/B]
Dismiss Sluggish Downloads Using NZB Downloads You Can Rapidly Search Movies, PC Games, Music, Applications and Download Them at Dashing Speeds

[URL=http://www.nzbsrus.com][B]Newsgroup Search[/B][/URL]

Anonymous said...

It isn't hard at all to start making money online in the underground world of [URL=http://www.www.blackhatmoneymaker.com]blackhat money[/URL], It's not a big surprise if you have no clue about blackhat marketing. Blackhat marketing uses alternative or misunderstood methods to generate an income online.