AAA, 1 vika liðin af skólanum og mig er strax byrjað að leiðast. Þetta er nú bara skóli. Í dag er reyndar enginn skóli vegna þess að það er labor day. Svít!..
Í gær fórum við, Janet, niðrí bæ og fengum okkur hádegismat á veitingarstað sem heitir 'The Cheesecake factory'. Þetta er geeeðveikur veitingarstaður. Rosalega góður matur en í rosa stórum skömmtum. Ég borðaði ekki nema 1/3 af salatinu sem ég fékk mér. Kíkti aðeins í Urban Outfitters eftir hádegismatinn og keypti mér leggings og sólgleraugu, úber kúl sólgleraugu. Var ekki að eyða meiri pening þarna inni þar sem þetta er ótrúlega dýr búð. Svo keyrðum við um og hún sýndi mér alls konar byggingar og svæði um borgina. Sá Pittsburgh University í öllu sínu veldi. Risastór campus! Keyrðum í gegnum Pittsburgh's gettó-hverfi. Það var, weird. Þurftum að læsa hurðunum á bílnum og alles..
Enduðum svo daginn á að fara í skoðunartúr með DUCKY. Ducky er skoðunarbíll/bátur og fer með okkur um borgina. Ég hló svo mikið!! Fékk að keyra ducky bátinn þannig að ég get ekki annað sagt en að dagurinn hafi endað vel:]
Á morgun er Field Hockey leikur en ég veit ekki hvort ég megi keppa. Veit ekki hvort ég hafi fengið leyfið frá gaurnum. Kemur í ljós. Annars þarf ég að að mæta í skólann á morgun klædd búningum:/ Það verður vandræðalegt! Þá tek ég myndir af mér í búningnum.
Eníveis.. setti inn fleiri myndir á 'myndir 1'. Enjoy:]
Alveg rétt! Ætlaði að setja inn heimilisfangið á heimilinu mínu.
207 Jefferson Drive
Pittsburgh, PA, 15228, USA
Túdels píps.
Guðný Debora.
Monday, September 3, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Mmm 'The Cheesecake factory'! =D voru ekki líka mega mikið af alskyns kökum?! það er þannig í Boston... jummí=D
Mí læks, ég hlakka til að sjá búninginn! Mega Hawt!
Stick to your side!!!!
Post a Comment