Ekki mikið hefur gengið á síðan seinustu bloggfærslu en mér datt samt í hug að skella inn nokkrum orðum til að láta vita af mér og setja nokkar myndir af hafnaboltaleiknum.
Í gær fór ég út að hlaupa því það var engin æfing. Fór ekki langt! Hljóp bara smá hring. En, boy ó boy, ég sá svo krúttleg og flott hús. Á meðan yfir hlaupinu og húsaskoðuninni stóð sá ég einnig fjögur hreindýr!!! Í garðinum hjá einu húsinu! Damn, ég vildi'ég hefði haft myndavélina með mér. Hreindýr, hérar og önnur dýr eru frekar vinsæl í görðunum þannig að ég mun væntanlega ná að smella nokkrum myndum einhvern tíma.
Í dag var leikur á móti annan skóla í field hockey en ég mátti ekki spila vegna þess að ég þarf að fá samþykki frá einhverjum gutta því fólk gæti haldið að Mt. Lebanon hafi flutt mig inn frá Íslandi því ég væri svo góð. Ööö.. neibb! Ég sukka.
Á morgun er svo æfing frá 9.30 til 13.00! Shoot me.. Eftir æfingu fáum við búninginn okkar:P Við keppum í pilsum. haha. Það verður athugavert. Tek myndir af búningnum og set á netið við fyrsta tækifæri. Ekki örvæntast:]
Held að þetta verði að næga þar sem ég hef ekkert meira til að segja:/
Myndir eru að finna hér við hægri hlið. Enjoy.. Þær eru btw, EKKI margar.
LuvU&MissU
Túdels
Guðný Debora Íslendingur!
Monday, August 20, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Hæ dúllan mín. Samt alltaf gaman að heyra frá þér þó það sé ekki mikið að gerast ;) Allt svo spennandi þarna í Ameríkunni.
Erla bigsys ;)
Hæ snúlla... ekkert smá gaman að fá smá fréttir af þér, ég er ekki frá því að ég sé soldið abbó hérna á Íslandi. þar er allt svo STÓRT þarna hjá þér.
Endilega setja myndir af þér í pilsi og með kylfuna :) Innflutt frá íslandi til að spila hockey, drama drama en mjög fyndið. Eins og áður þá hlakka ég til að hreya og sjá meria frá þér, þangað til Have Fun!
Elva little bigsys :)
Hahah gaman að sjá myndir:) Ég hlakka til að sjá myndir af íþróttastrákunum hah!
Þetta lítur allt vel út hjá þér :) aahh.. ameríkan !
Skólasetning í dag.. verður skrítið að hafa þig ekki í skólanum ! Söknuður!
Heyri þér :*
Vinga
Post a Comment