Undanfarna daga hefur verið shitafucka mikið að gera hjá mér. Á fimmtudaginn fóru flest allir skiptinemarnir í bláa lónið sem er btw not so blue, frekar svona pissugrænt:/ Eníveis. Eftir "bláa" lónið fórum við á Hróa hött. Á föstudaginn var enginn sérstakur dagur, minnir mig o.O ég er að fá frikkin alzheimer.
Laugardagurinn var fab! Fór í galadinner í tilefni 50 ára afmæli AFS á Íslandi. Það var haldin þvílíkt rómó veisla á hótel Nordica, sem nú er í eigu Hilton familíunnar. Framúrskarandi matur kom úr eldhúsi Vox, jummí:] Svo var sungið og jaríjarí. Eftir allt átið var tjúttað með gamla fólkinu. Furðulegt hvað mér þykir það drulluskemmtilegt! Eins og 80 ára afmælið sem ég fór í á Tálknafirði fyrir hálfu ári rsome. Skiptinemarnir sem eru hér í landi eru komnir með betri íslensku en ég! Og ekki mun íslenskan batna þegar ég hverf á brott í heilt ár. Fukk o.O
17. júní var feitur dagur... Ég og hulda gerðum eins og við gerum best. Borða. Fórum niðrí bæ um 5 leytið og komum aftur heim um 9 leytið og ákváðum þá að fara aftur niðrí bæ. Sátum þar á Arnarhóli allt kvöldið, frjósandi í hel og hlustuðum og ágæta hljómleika.
Í morgun mætti ég klukkutíma of seint í vinnuna. Ég fattaði það samt ekki fyrr en ég var komin niðrí vinnu. Þá hafði ég stillt vekjaraklukkuna einum tíma seinna en ég átti og verið það þreytt að nenna ekki að líta aaaalmennilega á klukkuna! Fatt me? Ruglaður dagur o.O
Líklega leiðinlegasta blogg í heimi but æm so bored.. Frí á morgun Ég er aumingi, hahh
Þangað til næst (lame)
Debora
Túdels:]
Thursday, June 21, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
haha þú ert yndi
meira blogg taakk
Post a Comment