Það styttist óðfluga í brottför en ég er nú komin með nákvæman brottfarartíma. 9. ágúst, 10:30. Vil helst bara hætta í vinnunni, vera heima og sofa þangað til 2. ágúst. Það væri næs:]
Á morgun er ég að fara með familíunni á Shrek 3, þar á meðal í lúxussal. Margir að segja að sú mynd sé briller! Svo næstu helgi er ég að fara í útilegu með familíunni. S.s. familí-time ahead.
Mútta og brósi komu heim í nótt frá... manikki. En mamma vakti mig í morgun með vælu og skömm. "Allt húsið er í drasli. Þvottur út um allt og rusl. Mímímí!". Það var ekki sagt "hæ" eða "góðan daginn", bara skellt þessu beint framan í morgunfúla fésið á mér. Ekkert sérlega gaman. Reyndar er alveg eitthvað til í þessu:/ Það er kominn tími til að ryksuga inni hjá mér þar sem ég óttast það að nýtt lífríki sé að myndast undir rúminu. Crapporoni.
Guðný
Túdels:]
Monday, June 25, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
elsku Guðný
já, það er erfitt að vera unglingur og vilja bara sofa og jamma....þarf stundum líka að takla til-:)
þrasarinn mamma
Post a Comment